Hinn óumdeilanlegi meistari alheimsins

Óumdeilanlegur meistari alheimsins

20.01.2007 19:16:56 / hjaltiooo

hey hey

hæ langaði bara svona fyrst tækifærið kom í hendurnar að skrifa smá ..... herrðu ég er semsagt að vinna á leikskóla núna.... engin skóli í bili!!!

en já það er bara virkilega gaman að vinna á leikskóla en líka erfitt... maður er fáránlega þreyttur alltaf eftir vinnu... þarf alltaf að leggja mig!! þetta er einhvernvegin öðruvísi þreyta en í heilalausri verkamannavinnu.... sérstaklega þar sem maður getur ekki beint bara slökkt á sér í þessari vinnu.... klárlega alltof illa borgað samt...

jæja bæ í bili....

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 20:35:10 / hjaltiooo

Skoooo...

getur einhver útskýrt fyrir mér afhverju það skella sér ekki bara allir í þetta SKO dæmi...  gerið verðsamanburð.... þeir segja að maður
geti hringt fyrir 0 kr í fólk sem er líka í sko til 1 janúar.... er ekki málið að plata fólk í þetta í stórum skömmtum?? það er ekki eins og vodafone og síminn séu e-ð að gefa manni mínúturnar.... klárlega að okra!!


í augnablikinu þá er ég að reyna að finna mér einhverja góða vinnu með skóla og ef einhver getur bent mér á  e-ð sniðugt þá eru allar ábendingar vel þegnar...

en semsagt allt í einu stend ég sjálfan mig af því að vera að googla FBI í staðinn fyrir vinnu... ég er að pæla hvernig ætli það sé að vera hausaveiðari.... ég held að maður gæti allveg með réttan bakgrunn og smá heimavinnu komið sér vel fyrir sem slíkur.... ég fór að skoða einhvern svona most wanted lista "top ten" e-ð...


mjög áhugaverð vinna með skóla.... ég samt fór að pæla í vinnunni sem liggur á bakvið það að finna gæja eins og  Bin Laden... vissulega eru 25 milljónir dala góður peningur fyrir vinnu með skóla... en hvað með útgjöldin sem hljóta að fylgja...  fyrst verðuru líklegast að gera þér dælt við einhvern fyrrverandi terrorista sem er frá mið austurlöndum. komast í smá kontakt við liðið fá nokkur msn hjá einhverjum glæpamönnum og svona...


svo verðuru örugglega að eiga þyrlu eða þotu eða e-ð álíka til þess að komast á milli staða til að geta stundað skólann... svo verðuru að hafa einhvern stað fyrir það allt saman... þannig að þú verður að koma þér upp sérstöku húsnæði fyrir slíkan búnað... eitthvað hlýtur það nú að kosta... díses...

ætli maður endi ekki bara í pizzabakstri eða úthringingum hjá gallup frekar.... ekkert metnaðarleysi samt...


fæ það bara á tilfinninguna að þetta sé frekar óraunhæft....


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 14:28:35 / hjaltiooo

Stopp....

 

 

----------------------------------------------------------------

STOPP

----------------------------------------------------------------

Kíkiði endilega á linkinn hérna að ofan. Umferðastofa er að skora á fólk að skrifa undir viljayfirlýsingu þar sem fólk samþykkir að það ætli að gera allt í sínu valdi til stuðla að fækkun dauðaslysa í umferðinni.


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 21:59:52 / hjaltiooo

Sunnudagur...

venjulega þegar maður er þunnur á sunnudegi er líklegasta útkoma dagsins að maður liggji hreyfingarlaus í einhverju annarlegu móki allan daginn og hendi þar með heilum frídegi í algleymið...

en ekki á sunnudaginn...

ég, óli og hannes ákváðum í kjölfar þess að skella okkur á Víking-KR í landsbankadeildinni að fara á Esjuna ég hafði aldrei farið á esjuna þannig að ég var mjög spenntur fyrir því þrátt fyrir það að veðrið hafi ekki beinlínis verið boðlegt til göngu á esjuna létum við það ekki aftra okkur..

Hérna á maður venjulega að sjá esjuna en þetta var veðrið þennan dag.

Nú ég komst síðan að því að drengirnir sem eru báðir í hörkuformi hugðust bomba upp esjuna á einhverjum mettíma.... Hlaupa og skokka eða ganga geðsýkislega hratt... ég sem hélt að ég væri að fara í sakleysislega göngu upp á esjuna var þarna að detta í einhverja svaka æfingu... ég hélt í við þá lengi vel en eftir svona sirka 20 mínútur þá sagði hreyfingarleysið allhressilega til sín og ég sagði þeim að fara bara á undan.... nú þeir stóðu ekkert svakalega lengi á því og voru fljótlega komnir doldið á undan mér... svo þegar ég er komin mjög hátt upp og er orðin svona frekar þreyttur og jafnvægislítill í þynkunni villist ég óvart af réttri leið og er komin þarna beint upp að einhverjum klettum sem ég gerði ráð fyrir að leiddu mann á toppinn... nú ég gerði semsagt þau heimskulegu mistök að horfa niður rétt áður en ég fór bara að klöngrast þarna upp og varð bara allveg skíthræddur... sá kannski svona sirka 15 metra niður en afgangurinn var í þoku og svo var rok í þokkabót... nú ég stóð þarna að reyna að halda jafnvæginu með því að halda í einhvern stein.... ég byrjaði að reyna að ná sambandi við strákana með einhverju blístri sem á endanum gerði það að verkum að ég rakst á þá aftur eftir að ég reyndi að finna þennan blessaða stíg aftur... þá voru þeir búnir að fara upp en voru nógu almennilegir til að koma með mér upp... jæja ég semsagt fór þarna upp á klukkutíma og 15 mín en ég náttlega fór samt fyrst vitlausa leið og e-ð.... þá getur maður sagst búin með það :) hefði samt allveg verið til í að sjá útsýnið... sem er víst frábæert

kvöldið var síðan tekið rólega yfir inside man með tinna, andra og inga.... gott tjill...

aiiight...

ég er komin í netsamband núna.... það er einhver í blokkinni sem er ekki búin að læsa hjá sér routernum... ég er að fíla það...:) hehehe

seinna...


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 15:04:51 / hjaltiooo

Bulgaria.....

vuuuuuhuuuuu caaaarazy..... bara lata heyra i mer adeins fra bulgariu eg a ekki til ord yfir tad hvad tad er haegt ad djamma mikid herna..... erum a faranlega flottu hoteli og gedveikum stad.... strakarnir sem eg for ut med eru lika faranlega nettir.... allt herna er miklu betra en eg atti nokkurn tima von a......

en herdu er farinn i nudd hja svaka piunni herna a hotelinu...... ciao bello

» 5 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 21:35:00 / hjaltiooo

svona er þetta þegar maður er ekki með netið og þarf að redda sér....

 Þú veist að það er 2006 ef.....

1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að
því
þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta
bara
á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer
fimm.
11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á
framfæri
einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu ... Aha ekkert svona fyrst að þú
féllst
fyrir þessu.


Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri
einhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinn
verður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til!

var að ná smá surfi heima hjá helga óttari eftir leikinn hjá portúgölum og frökkum og sá þetta einhversstaðar... ég náttúrulega bailaði ekki á að henda þessu dóti inn sérstaklega þar sem ég á afmæli á morgun og svona.... maður vill ekki jinxa það að eiga góðan dag á afmælinu sínu;)

en já annars þá sleit ég ekkert liðböndin eða neitt svoleiðis eins og stóð í færslunni hér á undan og heilsast kallinum svona þokkalega þó að manni gæti svosem liðið betur í helvítis hnénu... en maður er nú búin að fara að læknaráði og fara vel með hnéð þannig kannski spilar maður meiri bolta í sumar aldrei að vita...

en já annars er ég búin að fá 2 heavy nettar afmælisgjafir eina frá foreldrunum sem var sony cybershot myndavél... og hina frá óla og adda... en þeir komu í vinnuna til mín í dag þungir á svip og ætluðu voða e-ð að skammast "hjalti þetta gengur ekki lengur" sögðu þeir og voru bara frekar pist... ég var þarna eins og hálviti og vissi ekkert hvað þeir voru að tala um... nema hvað að þá e-ð voða koma þeir bara "neeeeeei spaug maður til hamingju með afmælið" og réttu mér poka með vansskóm í :) ég var náttúrulega í meira lagi hissa enda ekki vanur svona:) strákarnir fá feitt kredit og talsvert af orðleysi enda ekki við hvert afmæli sem maður fær svona svaka gjafir frá félögum sínum:)

Party _ Nads - 29.jpg

Addi á trommunum í partýi frá því í vetur.

Stra__kakvo__ld - 02.jpg

Óli hér einnig nettur á kantinum að venju á leiðinni á 101 hótel á strákakvöldi fyrr í vetur.

kallinn að slá í 22 eftir klukkutíma eða e-ð... djöööfull er maður að verða gamall e-ð samt bara að aldrinum til :D:) en jæja seinna....


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 22:36:57 / hjaltiooo

ertu ekki að grínast....

ég var að koma úr leik í Carlsbergdeildinni og það var bara einhver gaur sem tæklaði mig fyrir ofan hné.... nema hvað að mér skilst að maður sé ekkert tryggður í þessari blessuðu deild og ég er náttlega bara með rifin liðbönd og læti... þetta gerðist þannig að þegar ég er að pota boltanum framhjá gæjanum og er að stíga í löppina þegar þessi gaur kemur askvaðandi og þrombar í einhverri flugtæklingu í hnéð á mér.... svo rölti gæjinn að mér og segir fullur yðrunar "æji fyrirgefðu maður" ég verð nú bara að segja það að jafnaðargeðið í mér var ekki allveg tilbúið fyrir þetta kjaftæði... þannig ég sagði honum bara að halda kjafti!! og var vægast sagt brjálaður út í gæjann fyrir þessa glórulausu tæklingu... ég hef ekki orðið svona reiður á ævinni.... og sjitt hvað Þetta var vont maður....

jæja kannski pínu seinna... vona bara að ég geti farið í vinnuna maður!


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 00:20:49 / hjaltiooo

jææææææja

jæææææja komin tími á svona eins og eina færslu....

herrðu ég er semsagt hættur með netið í sumar þannig að ég á ekki von á því að færslurnar verði margar hjá mér.... ég geri svona fastlega ráð fyrir því að koma sterkur inn í haust en fólki er að sjálfsögðu velkomið að athuga reglulega hvort kallinn hafi nú verið að hitta naglann á höfuðið...

en já internetið það kostar 4000 krónur sem ég ætla að nota í e-ð annað.... búin að vera með hive núna í rúmt ár og get ekki sagt að ég sé e-ð svakalega sáttur með það... held ég fái mér btnet í haust fyrir skólann... kostar 3990 og frítt niðurhal ef ég skil það rétt...

annars er maður að heyra svakalegar sögur frá búlgaríu en þar eru verslingar að halda uppá útskriftina sína... ég heyri ekki betur en að annar hver maður þarna úti beri vopn af einhverju tagi og að menn séu óragir við að nota þau... stelpa var skorin þegar hún var ein á rölti þarna úti... hljómar ekki nógu vel... ég er einmitt að fara þangað í ágúst í 2 vikur vona að það verði búið að hreinsa þessa glæpamenn þaðan fyrir þann tíma!!

en þangað til næst....


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 00:18:13 / hjaltiooo

Loooðinn....

jæja herrðu það er bara komið sumar alltí einu... prófin búin... og við tekur allt sem sumrinu fylgir.... eintóm sæla og gleði.

ég sit hérna fyrir framan tölvuna sveittur eftir fótboltaleik í Carlsbergdeildinni, sem er 7 manna liða deild. Núna spila ég með Þursaflokknum þar en þeir stefna á sigur í deildinni. við byrjuðum tímabilið vel sigruðum nokkuð sterkt lið 5-1.

ég er einnig komin í e-ð lið í utandeildinni sem heitir Fc Ice. þeir eru doldið langt frá því að vera jafn heitir og þursarnir.... en það er gott að koma sér í gang aftur í 11 manna boltanum með bara einhverju liði.

en já ég byrjaði í Fjölskyldugarðinum á mánudaginn og það er æðislegt að vera byrjaður þar aftur... svo gott andrúmsloft þar og gaman líka bara að vera vinna með fullt af góðum félögum.

þar sem sem ég sit hérna samt þá langar mig að benda þeim á sem ekki vita... að eitthvert rrrrosalegasta íscombo sem til er í heiminum er Double choclate magnum ís og ananas hlunkur.... þvílík gargandi snilld!!! prófið þetta eða komið endilega með betra combó...

en herrðu mér var bent á þessa snilldar mynd sem var tekin af mér á hverfisbarnum um helgina... þess má geta að daman á myndinni heitir Dóra og er kærasta eins af Búlgaríufélögunum og formanns nemendafélags Fjölbrautar við Ármúla. Enginn annar en Andri Geirsson. nóg um það sjáiði þessa mynd.... þetta er bara of......loðið;):D


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 18:25:03 / hjaltiooo

Grillað...

aaaaa já ég ætti núna samkvæmt öllu að vera búin í prófunum mínum, en neeeeei ég tók upp á því í gær að mæta í dönskupróf á vitlausum tíma. prófið átti semsagt að vera klukkan 9 en ég mætti galvaskur klukkan 11..... þaaannig að ég þarf að taka það á mánudaginn.

annars er það að frétta að eftir vel heppnaða grillveislu síðastliðin laugardag þar sem ég var að vígja grillið sem ég fékk mér í fyrra þá fóru allir gæjarnir í bæinn og skemmtu sér gríðarlega vel. Óli kom með líter af vodka og haukur og frikki komu með malibu og e-ð ávaxtabland. úr varð einhver drykkur sem var nokkuð líkur pina colada. ingi grillaði og voru steikurnar vel heppnaðar hjá honum. talsvert var um ölvun og myndi ég segja að haukur og óli hafi unnið í þeirri keppni. þó kann að vera að ég hafi ekki verið í ástandi til að dæma þar um. á leiðinni heim þá ákvað ég að labba bara frá óla úr breiðholtinu en ég hafði tekið með honum leigubíl þangað. nú það tók einhvern góðan hálftíma að labba heim og giska ég á að ég hafi verið komin heim svona um 7 leytið. veðrið var reyndar einstaklega gott þannig að þetta var kannski ekkert slæm ákvörðun svoleiðis. en þegar heim var komið og ég stend við dyrnar tilbúin að ganga inn í húsið grípur í mig sú hugmynd að það væri líklegast best að sofa bara í bílnum......8|8|8| nú ég átti að fara að vinna klukkan 11 um morguninn þannig að ég vaknaði svona líka sæmilega ónýtur og brunaði beint í vinnuna með djammsvitalyktina viðloðandi. ég hef ekki hugmynd afhverju í ósköpunum ég gat ekki bara sofið uppi í rúminu mínu. það hefði allavega verið talsvert betra enda fór ekkert sérlega vel um mig í bílnum....

en þangað til næst......


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 13:16:52 / hjaltiooo

Slumma.....

Ég lenti í hellvíti fyndnu atviki áðan... var að koma úr ensku prófi og er að setjast inní bíl. Nú ég e-ð ræsi bílinn og finn svo að ég þarf að hrækja. Nema hvað ég skrúfa niður og skrúfa niður gluggan í farþegasætinu óvart. Þar sem ég hef allveg frekar mikla reynslu af því að hrækja þá ákvað ég að vera nú ekkert að eyða neinu rafmagni í það að skrúfa mína rúðu niður og spýta þar út heldur bara að þrusa út hinum megin. Það heppnaðist nú ekki betur en svo að ég bombaði í innréttinguna og endaði með því að fá slummuna í hendina þegar ég gerði tilraun til að bjarga farþegasætinu frá afskræmingu slummunnar.

annars er nú ýmislegt að gerast svona frá degi til dags. ég hef bara hreinlega ekki nennt að blogga upp á síðkastið. En ég er að detta í gírinn aftur og það má búast við annsi fersku bloggi á næstu misserum. Í færslum framtíðarinnar er ég meðal annars beðin um að giftast marokkóskri konu ég geri upp klósettferðir og kem inná viðkvæma hluti hversdagsins.

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 19:48:00 / hjaltiooo

Ef þetta er ekki sannleikurinn í sinni tærustu mynd, hver er hann þá.....

1. Þú getur notið bjórsins allan mánuðinn.
2. Bjórblettur þvæst úr.
3. Bjórinn bíður þolinmóður eftir þér í bílnum meðan þú leikur fótbolta.
4. Ef bjórinn verður flatur, þá hendir maður honum bara.
5. Bjór er aldrei of seinn.
6. Bjór verður ekki afbrýðisamur þótt þú náir í annan.
7. Timburmenn hverfa.
8. Þú getur tekið bjórinn úr umbúðunum án mótbára.
9. Þegar þú ferð á bar getur þú alltaf náð þér í bjór.
10. Bjór er aldrei með hausverk.
11. Þegar þú ert búinn með bjórinn, getur þú selt glerið.
12. Þú getur alltaf deilt bjórnum með vinum þínum.
13. Bjór er alltaf blautur.
14. Þú veist að þú er alltaf sá fyrsti sem opnar bjórinn.
15. Bjór krefst ekki jafnréttis.
16. Þú getur fengið þér bjór á almannafæri.
17. Bjórnum er alveg sama hvenær þú "kemur".
18. Kaldur bjór er góðu bjór.
19. Þótt þú skiptir um bjór þarftu ekki að borga meðlag.
20. Þú getur fengið þér fleiri en einn bjór á kvöldi án þess að fá samviskubit.

Ég er ekki frá því bara að hér sé um svellkaldar staðreyndir að ræða. Þætti allavega gaman að vita ef einhver getur mótmælt þessu.


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 20:16:45 / hjaltiooo

jæja þetta er búin að vera annsi nett vika bara...

þar sem ég er fátækur námsmaður þá lenti ég í því í gær að þurfa að fara og taka út orlofið mitt... byrjaði á því að kíkja í spron í smáralind.....

þar sem viðskiptavinir spron eru einmitt sagðir þeir ánægðustu í bankakerfinu röllti ég þarna inn í þeirri von um að þarna fengi ég einhverja fáránlega góða þjónustu... gefins súkkulaði og kók og að við afgreiðsluborðið biði mín myndarleg ljóshærð hnáta til að sjá um það að vel færi um mig meðan ég sinnti mínum viðskiptum við gjaldkeran

jæja semsagt ég röllti þarna inn og ekki bara bíður mín frekar óafslappað umhverfi hagkaupa sem setur allt á annan endan þarna heldur er bara einn gjaldkeri og hann var að afgreiða. ég er nú ekki þekktur fyrir annað en að vera sæmilega þolinmóður þaaaaannig að ég beið og beið og beið og.... svo tek ég eftir því að það eru tvær konur þarna að spjalla voða mikið e-ð.... hmmm þær voru að vinna þarna líka þegar betur var að gáð þannig ég spurði þær hvort þær gætu nú ekki aðstoðað mig snöggvast þar sem ég var nú svona semí á hraðferð... þær horfðu bara e-ð á mig og frussuðu e-ð á mig áður en önnur þeirra drattaðist til að aðstoða mig... svo kom í ljós að ég átti þarna heilar þúsund krónur og gladdi það mig mikið því ég var bæði svangur og þurfti að setja smá bensín á bílinn.... nema hvað þá frussar gjaldkerinn einhverju framan í mig um það að ég þyrfti að borga 220 krónur af þessum 1000 krónum í þjóustugjald.... ég var bara "whatt" og hækkaði kannski róminn full mikið því alla leið á kassan í haugkaup þá var fólk að líta á mig.... ég hreytti einhverjum skammaryrðum og ónotum í hana þangað til að ég áttaði mig á því að hún var ekki að hlusta og farin að tala aftur við hina kerlinguna... 

en semsagt þarna stóð ég með 780 kall... frekar leiðinlegt

ég skil ekki hvað gerir þetta fólk allt svona ánægt með spron

þegar ég fór síðan í landsbankann þá fékk ég nákvæmlega þá þjónustu sem ég hafði átt von á í spron..... annars hvað er málið með glitni er þetta ekki bara lélegasta bankanafn í heiminum.... þetta er bílafjármögnun ekki banki.... jæja ég allavega vorkenni ykkur sem eruð hjá spron og glitni. glitni þó aðallega því að þeir eru bara plain asnalegir;)

jæja hjaltiooo út....


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 01:37:36 / hjaltiooo

Óheppilegt sirkusatvik....

ok ég var að koma heim úr vinnunni og tók smá rúnt á netinu áður en ég skreið upp í rúm, fann þessa líka fáránlega fyndnu sögu hérna af dverg sem var óvart...... ég leyfi ykkur bara að lesa hana:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 22:30:47 / hjaltiooo

Hversu heit er svala eiginlega....

Hversu heit er Svala Björgvins? ég vil fá einkunnir á bilinu 1-10...... ég veit að þetta er erfitt þar sem hún stendur náttúrulega vil hliðina á mér og fegurð mín náttlega leggur skugga á fegurð hennar en gerið ykkar besta samt til að gefa henni séns..... Án gríns vááááá hún er heit..... ég gef henni 9 


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
RSS tengill